Hér lýsum við hvaða upplýsingum við söfnum þegar þú verslar hjá Bjarmanum, hvernig við notum þær og hvaða réttindi þú átt.
Hvaða upplýsingum við söfnum
Þegar þú leggur inn pöntun söfnum við nafni, heimilisfangi, netfangi og símanúmeri, ásamt upplýsingum um pöntunina sjálfa. Greiðsluupplýsingar fara beint til greiðsluþjónustunnar og eru ekki geymdar hjá okkur.
Þegar þú skoðar vefinn safnast einnig tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tala, vafri og hvaða síður þú skoðar.
Hvernig við notum upplýsingarnar
Við notum þær til að afgreiða og senda pöntunina þína, svara fyrirspurnum, koma í veg fyrir svik og bæta vefinn. Við sendum þér markpóst aðeins ef þú hefur samþykkt það, og þú getur alltaf afskráð þig.
Hverjir fá upplýsingarnar
Við deilum upplýsingum aðeins með þeim sem þarf til að afgreiða pöntunina: vefverslunarkerfinu okkar, greiðsluþjónustum og flutningsaðilum. Við seljum aldrei persónuupplýsingar.
Vafrakökur
Vefurinn notar vafrakökur til að muna körfuna þína, mæla umferð og mæla árangur auglýsinga. Þú getur slökkt á vafrakökum í vafranum þínum, en þá virkar vefurinn ekki að fullu.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá afrit af þeim upplýsingum sem við geymum um þig, láta leiðrétta þær eða eyða þeim. Sendu beiðni á info@bjarminn.com og við bregðumst við innan 30 daga.
Hafðu samband
Spurningar um persónuvernd: info@bjarminn.com