Skilaréttur

Þú hefur 14 daga frá því að þú færð pakkann til að skipta um skoðun.

Sendu okkur póst á info@bjarminn.com með pöntunarnúmerinu þínu. Við sendum þér skilaleiðbeiningar og heimilisfangið sem senda á til baka.

Ef þú skiptir um skoðun: varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Þú greiðir sendingarkostnaðinn til baka. Við endurgreiðum um leið og varan kemur til okkar.

Ef varan kemur skemmd: sendu okkur mynd innan 14 daga. Þú ræður hvort þú vilt nýja vöru þér að kostnaðarlausu eða fulla endurgreiðslu. Þú þarft ekki að senda skemmdu vöruna til baka.

Endurgreiðslan fer á sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, innan 14 daga frá því að við tökum við skilunum.